{"product_id":"excel-fyrir-lengra-komna","title":"Excel II: Fyrir Lengra Komna","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003eAlgengur misskilningur er að því betri sem maður verður í Excel, því flóknari verði formúlurnar. Þau sem best kunna á forritið gera einmitt hið gagnstæða: þau ákveða í upphafi hvernig endanleg afurð á að líta út og halda skjalinu eins einföldu og læsilegu og hægt er. Þetta námskeið byggir á þeirri hugsun og fer í þau atriði sem koma upp þegar Excel er notað í raunverulegri vinnu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003eFarið er yfir eftirfarandi:\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003eSkynsamleg uppsetning skjala. Grunnreglur sem borga sig strax: aldrei blanda saman innslegnum tölum og formúlum í sama reit, setja allar breytur í eigin innsláttarreiti og skilja formúlurnar eftir ósnertar. Einnig litamerking innsláttarreita, skírðir reitir, forsnið talna með Custom sniði og hvernig mínustölur eru dregnar fram svo skjalið verði læsilegt fyrir aðra en þann sem bjó það til.\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003eCircular reference. Hvað þessi villuboð þýða, hvernig þau eru rakin með Trace Precedents og hvernig þau eru leiðrétt. Einnig hitt tilvikið, þegar hringtenging er nauðsynleg og ætluð, til dæmis í sjóðstreymisáætlun þar sem vaxtatekjur og handbært fé byggja hvort á öðru, og hvernig iterative calculations er þá stillt. Auk þess af hverju á að hafa slökkt á þeirri stillingu að öllu jöfnu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003ePivot töflur. Hvernig mikið magn gagna er dregið saman á skiljanlegan hátt, uppsetningin frá vali á gagnasvæði að fullbúinni töflu, hvernig Rows, Columns og Values raðast, síun eftir breytum, og af hverju framsetningin sjálf ræður miklu um hvort taflan sé læsileg.\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003eSannreynslureitir. Formúlur sem reikna ekkert út heldur staðfesta að tilteknar forsendur standist, til dæmis að eignir stemmi við skuldir og eigið fé. Hvernig þeir eru litaðir grænir og rauðir með skilyrtu forsniði, og hvernig aukastafir geta gefið ranga niðurstöðu og hvernig það er lagað með námundun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003eGerð tímalína. Hvernig verkefni er sett myndrænt fram með AND, IF og skilyrtu forsniði í stað þess að teikna það handvirkt. Í leiðinni er farið yfir dollaramerki í tilvísunum og hvenær á að festa dálk, línu eða hvort tveggja, sem er forsenda þess að formúlan virki þegar hún er afrituð yfir alla töfluna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003eAð loknu námskeiði getur þú byggt upp Excel skjöl sem aðrir skilja, fundið og leiðrétt villur í eigin líkönum og notað Excel bæði til útreikninga og til myndrænnar framsetningar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eLengd námskeiðs: 55 mín.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eKennari: Haukur Skúlason\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Norður Akademía","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53830402113830,"sku":null,"price":20000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0939\/0564\/9958\/files\/Prilla_in_Perlan_-_3000px_-_HHH07815.png?v=1788796468","url":"https:\/\/nordurakademia.is\/products\/excel-fyrir-lengra-komna","provider":"Norður Akademía","version":"1.0","type":"link"}