Norður Akademía

Excel I: Grunnatriði

5,000 kr

Excel er í grunninn afar fjölhæfur vasareiknir, en fyrir þann sem opnar það í fyrsta sinn blasir bara við auður flötur og engin augljós byrjun. Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja komast yfir þann þröskuld og byrja að nota Excel í daglegum störfum.

Fyrst er farið yfir uppbyggingu forritsins: valmyndina, vinnusvæðið og hvernig bók (workbook) skiptist í kafla (worksheet). Þar á eftir er hnitakerfið sjálft útskýrt, hvernig hver reitur fær auðkenni af dálki og línu, því öll notkun Excel snýst um tvennt: hvað á að gera og hvert á að leita.

Því næst eru teknar fyrir þær skipanir sem raunverulega eru notaðar dags daglega:

SUM til að leggja saman tölur í völdum reitum, og hvað formúlan er í raun að segja Excel.

AVERAGE til að finna meðaltal, með sömu reglum um sviga og tilvísanir.

IF til að láta Excel bregðast við þegar tiltekið skilyrði er uppfyllt, og af hverju munurinn á "stærra en" og "stærra en eða jafnt og" skiptir máli.

SUMIF og COUNTIF, þar sem skilyrði og útreikningur eru sameinuð, annars vegar til að leggja saman og hins vegar til að telja.

VLOOKUP til að fletta upp gildum í töflu, ásamt þeim algengu gildrum sem valda röngum niðurstöðum.

Að lokum er farið yfir algengustu lyklaborðsskipanirnar fyrir bæði Windows og Mac, því góð tök á Excel snúast að stórum hluta um að nota músina sem minnst.

Grunnhugsunin í gegnum allt námskeiðið er sú sama: Excel gerir nákvæmlega það sem því er sagt að gera, hvorki meira né minna. Þegar þú skilur hvernig á að orða skipunina rétt verður restin einföld.

Að loknu námskeiði kannt þú skil á uppbyggingu Excel og getur notað þær formúlur sem duga fyrir langflest verkefni sem koma upp í rekstri og daglegri vinnu með tölur.

Lengd námskeiðs: 40 mín

Kennari: Haukur Skúlason, meðstofnandi indó