Vinsælustu námskeiðin
Þau námskeið sem hafa verið í uppáhaldi hjá nemendum okkar
Um okkur
Við bjóðum upp á hagnýt netnámskeið fyrir fyrirtæki og einstaklinga í rekstri. Markmiðið er að gera flókin viðfangsefni eins og fjármál, bókhald, markaðsmál og rekstur einföld og aðgengileg. Námskeiðin eru hönnuð af sérfræðingum, sniðin að íslenskum aðstæðum, og gefa fólki tæki og tól sem það getur nýtt strax í daglegum rekstri. Með Norður Akademíu færðu þekkingu sem sparar tíma, minnkar kostnað og styrkir reksturinn.
Fyrstu námskeiðin okkar eru þegar komin í loftið, og við erum að vinna hörðum höndum að því að þróa fleiri námskeið í rekstraráætlunum, fjárfestingum, bókhaldi, og fleira. Við ætlum að vera dugleg að bæta við fjölbreyttum námskeiðum.
Hvað þú munt læra
Að öðlast dýpri og ítarlegri skilning á fjármálum rekstrarins
Að taka betri og skynsamari ákvarðanir í fjármálum
Að leggja grunn að langtímavexti og stöðugum árangri
Við mælum með

Greining ársreikninga I & II
Greining ársreikninga I og II
Tvö námskeið sem taka þig frá grunninum yfir í að lesa ársreikning skráðs félags í heild sinni.
Í fyrri hlutanum færðu leiðsögn í gegnum þrjá meginhluta ársreiknings: rekstrarreikning, sem sýnir tekjur, gjöld, framlegð og hagnað, efnahagsreikning, sem gefur mynd af eignum, skuldum og eigin fé á ákveðnum tímapunkti, og sjóðstreymisyfirlit, sem útskýrir hvernig handbært fé flæðir inn og út og af hverju það er oft mikilvægara en bókfærður hagnaður.
Seinni hlutinn byggir ofan á það og notar raunverulegan ársreikning Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. sem dæmi allan tímann. Þar er farið yfir skýrslu stjórnar og forstjóra, áritun endurskoðanda og hvað lykilatriði endurskoðunarinnar segja um það hvar óvissan liggur. Einnig hvernig reikningarnir þrír tengjast innbyrðis og hvernig skýringarnar aftast útskýra tölurnar framar í ársreikningnum, og að lokum hvernig markaðsvirði félagsins og V/H hlutfall tengjast því sem stendur í reikningnum.
Að loknum báðum námskeiðum getur þú lesið ársreikning með sjálfstrausti, áttað þig á lykiltölum og metið stöðu félags og líklega þróun þess, hvort sem þú ert frumkvöðull, stjórnandi eða fjárfestir.
Lengd: 3 klst. samtals (2 klst. + 1 klst.)
Kennari: Haukur Skúlason, meðstofnandi indó










