Norður Akademía

Að stofna og reka fyrirtæki

50,000 kr 40,000 kr Sparaðu 10,000 kr

Stofnun Fyrirtækja og Gerð Rekstraráætlana

Tveir hlutar af sama verkefni: að koma fyrirtæki á fót og að vita hvert það er að fara.

Fyrra námskeiðið fer yfir stofnunina sjálfa og reglurnar sem gilda um reksturinn á Íslandi. Þú lærir hvaða skjöl og samþykktir þarf við stofnun einkahlutafélags, hver munurinn er á verktaka og launþega og hvað telst gerviverktaka, hvernig skilum á virðisaukaskatti og staðgreiðslu er háttað, hvað gildir um lífeyrissjóð og tryggingagjald, og hver lagaleg ábyrgð stjórnenda er þegar skil fara úrskeiðis.

Seinna námskeiðið tekur við þegar félagið er komið á fót og snýr að rekstraráætluninni. Þar lærir þú að setja fram trúverðugar forsendur um tekjur og kostnað, áætla þróun launakostnaðar, framlegðar og EBITDA, greina samspil rekstrarreiknings og efnahagsreiknings, og meta áhrif fjárfestinga og skulda á reksturinn.

Saman ná námskeiðin yfir bæði hliðar málsins: að reksturinn standist þær kröfur sem gerðar eru til hans, og að þú vitir hvort hann beri sig.

Að loknum báðum námskeiðum getur þú stofnað fyrirtæki og haldið skilum í lagi, unnið eigin rekstraráætlun í Excel og notað hana til að taka raunhæfar ákvarðanir um framhaldið.

Lengd: 2 klst. 45 mín. samtals (45 mín. + 2 klst.)

Kennari: Haukur Skúlason, meðstofnandi indó