
Norður Akademía
Stofnun Fyrirtækja
Hagnýtt námskeið fyrir frumkvöðla og þá sem ætla sér að stofna eigið fyrirtæki. Þetta námskeið fer yfir allt sem þú þarft að vita til að stofna og reka fyrirtæki á lögmætan og skipulegan hátt á Íslandi. Þú lærir í einföldu máli hvernig ferlið virkar, frá fyrstu skrefum við stofnun einkahlutafélags til skil á virðisaukaskatti, staðgreiðslu og öðrum opinberum gjöldum. Námskeiðið fjallar meðal annars um:
- Ferlið við stofnun fyrirtækis og hvaða skjöl og samþykktir þarf að útbúa
- Muninn á verktaka og launþega, og hvað telst gerviverktaka
- Skil á virðisaukaskatti (VSK), hvað útskattur og innskattur þýða og hvernig þau reiknast
- Launagreiðslur og staðgreiðsla skatta, ábyrgð fyrirtækisins og skilafresti
- Lífeyrissjóðsgreiðslur og tryggingagjald
- Lagalega ábyrgð stjórnenda og afleiðingar rangra skila
Námskeiðið er ætlað frumkvöðlum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og öllum sem vilja fá skýra mynd af því hvernig fyrirtækjarekstur virkar í reynd án flókins lagamáls. Að loknu námskeiði munt þú vita nákvæmlega hvernig á að stofna fyrirtæki, hvaða reglur gilda um skattaskil og hvernig forðast má algeng mistök sem geta kostað bæði tíma og fé.
Lengd námskeiðs: 45 mín.
Kennari: Haukur Skúlason




