
Norður Akademía
Excel I & II
Excel I: Grunnatriði og Excel II: Fyrir Lengra Komna
Tvö námskeið sem taka þig frá auðum fleti yfir í að byggja Excel skjöl sem aðrir skilja.
Fyrra námskeiðið er fyrir þá sem opna Excel og vita ekki hvar á að byrja. Farið er yfir uppbyggingu forritsins, hvernig bók skiptist í kafla og hvernig hnitakerfið virkar, og því næst þær skipanir sem raunverulega eru notaðar dags daglega: SUM, AVERAGE, IF, SUMIF, COUNTIF og VLOOKUP, ásamt algengustu gildrunum við uppflettingar. Að lokum eru teknar fyrir algengustu lyklaborðsskipanirnar fyrir Windows og Mac.
Seinna námskeiðið snýr að því sem kemur upp þegar Excel er notað í raunverulegri vinnu. Þar er farið yfir skynsamlega uppsetningu skjala, þar sem innsláttarreitir og formúlur eru aðskilin og skjalið gert læsilegt fyrir aðra en þann sem bjó það til. Einnig circular reference, bæði sem villu og sem ætlaða hringtengingu í áætlanagerð, pivot töflur til að draga saman mikið magn gagna, sannreynslureitir sem staðfesta að forsendur standist, og gerð tímalína með skilyrtu forsniði.
Rauði þráðurinn í báðum námskeiðum er sá sami: Excel gerir nákvæmlega það sem því er sagt að gera, hvorki meira né minna, og einfalt skjal er alltaf betra en flókið.
Að loknum báðum námskeiðum kannt þú þær formúlur sem duga fyrir langflest verkefni í daglegri vinnu með tölur, getur fundið og leiðrétt villur í eigin líkönum og notað Excel bæði til útreikninga og myndrænnar framsetningar.
Lengd: 1 klst. 35 mín. samtals (40 mín. + 55 mín.)
Kennari: Haukur Skúlason, meðstofnandi indó



