
Norður Akademía
Gerð Rekstraráætlana
Hagnýtt námskeið í áætlanagerð og rekstrargreiningu. Þetta námskeið kennir þér hvernig á að byggja upp raunhæfa og faglega rekstraráætlun, grunnverkfærið sem öll fyrirtæki þurfa stór sem smá. Þú lærir hvernig rekstraráætlun tengir saman tekjur, kostnað, eignir, skuldir og handbært fé, og hvernig þú getur notað hana til að taka betri ákvarðanir í rekstri. Með skýrum útskýringum og dæmum lærir þú meðal annars að:
- Setja fram trúverðugar forsendur um tekjuvöxt og kostnað
- Áætla þróun í launakostnaði, framlegð og EBITDA
- Greina samspil rekstrarreiknings og efnahagsreiknings
- Meta áhrif fjárfestinga, skulda og eigin fjár á rekstur
- Finna út hvar hægt er að hagræða og bæta reksturinn
Námskeiðið er hannað fyrir frumkvöðla, stjórnendur, fjárfesta og alla sem vilja skilja hvernig áætlanagerð hjálpar til við að tryggja sjálfbæran og arðbæran rekstur. Að loknu námskeiði munt þú geta unnið eigin rekstraráætlun í Excel, með fullri yfirsýn yfir tekjur, gjöld, hagnað og handbært fé, og notað hana til að taka raunhæfar ákvarðanir um framtíð fyrirtækisins.
Lengd námskeiðs: 2 klst.
Kennari: Haukur Skúlason




