Norður Akademía

Endurnýjun Verðbréfaréttinda

30.000 kr

Námskeið fyrir þá sem þurfa endurmenntun vegna verðbréfaréttinda, og er námskeiðið vottað af Prófnefnd verðbréfaréttinda. Þetta námskeið er hluti af þeim grunnþekkingarþáttum sem krafist er af þeim sem hyggjast standast próf nefndar um verðbréfaréttindi hjá Fjármálaeftirlitinu. Námskeiðið fjallar um helstu áhættuþætti sem tengjast fjárfestingu í hlutabréfum og hvernig meta má raunverulegt virði þeirra. Með skýrum útskýringum og dæmum lærir þú:

  • Hvernig hlutabréf virka og hvaða réttindi fylgja þeim
  • Hvaða áhættu þarf að meta (markaðsáhættu, fyrirtækisáhættu, skuldsetningu o.fl.)
  • Mismunandi leiðir til virðismats, þar á meðal arðgreiðslulíkön, fjárstreymislíkön (FCFF/FCFE) og umframhagnaðarlíkön
  • Hvernig lesa má og túlka lykiltölur eins og WACC, NOPAT og CAPEX
  • Hvernig innra virði hlutabréfa er metið út frá framtíðar ávöxtun og áhættu

Námskeiðið hentar öllum sem starfa eða hyggjast starfa á fjármálamarkaði, sem og þeim sem vilja öðlast dýpri skilning á verðmyndun og áhættu í hlutabréfaviðskiptum. Að loknu námskeiði hefur þú öðlast traustan skilning á því hvernig virði hlutabréfa verður til og hvernig áhætta birtist í raun, þekking sem er nauðsynleg fyrir alla sem vilja standast próf til verðbréfaréttinda eða vinna faglega með fjármálagerninga.

Að námskeiði loknu fær nemandi vottorð um að hafa staðið námskeiðið.

Lengd námskeiðs: 3 klst.

Kennari: Haukur Skúlason