
Norður Akademía
Greining ársreikninga I & II
Greining ársreikninga I og II
Tvö námskeið sem taka þig frá grunninum yfir í að lesa ársreikning skráðs félags í heild sinni.
Í fyrri hlutanum færðu leiðsögn í gegnum þrjá meginhluta ársreiknings: rekstrarreikning, sem sýnir tekjur, gjöld, framlegð og hagnað, efnahagsreikning, sem gefur mynd af eignum, skuldum og eigin fé á ákveðnum tímapunkti, og sjóðstreymisyfirlit, sem útskýrir hvernig handbært fé flæðir inn og út og af hverju það er oft mikilvægara en bókfærður hagnaður.
Seinni hlutinn byggir ofan á það og notar raunverulegan ársreikning Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. sem dæmi allan tímann. Þar er farið yfir skýrslu stjórnar og forstjóra, áritun endurskoðanda og hvað lykilatriði endurskoðunarinnar segja um það hvar óvissan liggur. Einnig hvernig reikningarnir þrír tengjast innbyrðis og hvernig skýringarnar aftast útskýra tölurnar framar í ársreikningnum, og að lokum hvernig markaðsvirði félagsins og V/H hlutfall tengjast því sem stendur í reikningnum.
Að loknum báðum námskeiðum getur þú lesið ársreikning með sjálfstrausti, áttað þig á lykiltölum og metið stöðu félags og líklega þróun þess, hvort sem þú ert frumkvöðull, stjórnandi eða fjárfestir.
Lengd: 3 klst. samtals (2 klst. + 1 klst.)
Kennari: Haukur Skúlason, meðstofnandi indó




