Fræðsla fyrir Fyrirtæki

Stjórnendur sem skilja tölurnar taka betri ákvarðanir, og við komum til ykkar og kennum þeim.

Norður Akademía heldur námskeið á starfsstöð fyrirtækja um land allt. Enginn ferðatími, enginn dagur farinn í að senda fólk niður í bæ, og allir sem eiga að sitja námskeiðið sitja það.

Af hverju námskeið á staðnum ?

Allt teymið á sama stað. Þegar átta manns fara á námskeið sitt í hvoru lagi
verður til misskilningur. Þegar þau sitja sama námskeiðið tala þau sama tungumál
eftir á.

Efnið er sniðið að ykkar rekstri. Við notum ykkar tölur og ykkar dæmi, ekki
tilbúin dæmi úr kennslubók.

Lengdin ræðst af efninu. Stutt námskeið, heill dagur eða dagskrá sem dreifist
yfir nokkrar vikur. Fólkið ykkar er á vinnutíma allan tímann.

Ódýrara en að senda fjóra á opið námskeið. Sama fræðsla, allur hópurinn,
ekkert ferðalag.

Norður Akademía

Svona virkar þetta

1. Þið hafið samband. Segið okkur hvað þið viljið ná fram og hversu margir
eiga að sitja námskeiðið.

2. Við sendum tillögu. Efni, lengd, dagsetning og verð. Engin skuldbinding.

3. Við mætum til ykkar. Þið þurfið fundarherbergi og skjávarpa, ekkert annað.

4. Þátttakendur fá gögnin. Glærur og æfingar sendar á alla eftir námskeiðið,
svo hægt sé að fletta upp seinna.

Að auki fá allir sem sitja námskeiðið aðgang að öllum netnámskeiðum Norður Akademíu í heilt ár.

Staðnámskeiðin okkar

Hluti af þeim námskeiðum sem standa til boða.

Stjórnun og dýpkun viðskiptatengsla

Farið er í hvernig kortleggja megi viðskiptavini og rækta betur tengsl við þá sem eru mikilvægastir og arðbærastir. Einnig verður farið í hvernig tryggja megi að samskipti við þá séu uppbyggileg og skýr.

Áætlanagerð

Hvernig tryggjum við áreiðanlega og trausta áætlanagerð? Hvað er mikilvægt að gera og hvað þarf að forðast? Góð áætlun er grundvöllur góða rekstrar og því er mikilvægt að hafa þetta í föstum og góðum skorðum.

Peningaþvættisvarnir

Inngangur fyrir þau fyrirtæki sem ber skylda skv. lögum að halda uppi vörnum gegn peningaþvætti um hvað þurfi að gera og hvernig skuli haga slíkum vörnum.

Greining tölulegra upplýsinga

Farið er í greiningu á tölulegum upplýsingum þíns fyrirtækis og dregið fram hvar styrkleikar liggja og hvað gera má betur